Lífshlaupið 2015

Lífshlaup ÍSÍ
Lífshlaup ÍSÍ

Lífshlaupið, heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ hófst þann 4. febrúar og er skráning enn í fullum gangi og ekkert of seint að skrá sig til leiks þó að verkefnið sé byrjað.

Við hvetjum Selfyssinga að skrá sig til leiks og taka þátt í þessu skemmtilega verkefni.

Lífshlaupið skiptist í þrjár keppnir:

  • Vinnustaðakeppni frá 4. - 24. febrúar
  • Grunnskóla-, og framhaldsskólakeppni 4. - 17. febrúar
  • Einstaklingskeppni sem er í gangi allt árið

Markmið Lífshlaupsins er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig og huga að sinni hreyfingu í frítíma, heimilisstöfum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Skrá má alla hreyfingu inn á vefinn svo framarlega sem hún nær ráðleggingum Embætti landlæknis um hreyfingu. Börn og unglingum er ráðlagt að hreyfa sig í a.m.k. 60 mínútur á dag og fullorðnir a.m.k. 30 mínútur á dag.


Skemmtilegir leikir í gangi samhliða Lífshlaupinu

Myndaleikur er í gangi á Instagram og á Fésbók þar sem að þú merkir myndirnar með #lifshlaupid. Dregið verður úr innsendum myndum eða myndböndum 10., 13., 17., 20. og 24. febrúar.

Einn einstaklingur er dreginn út, í hvatningarleik Rásar 2 og ÍSÍ, á hverjum virkum degi í þættinum Virkir morgnar á Rás 2 meðan Lífshlaupið er í gangi. Glæsilegir vinningar frá Ávaxtabílnum, Happ, Pennanum/Eymundsson, Klifursetrinu, Bláa Lóninu, Kringlunni, Reebok, Skautahöllinni og Bogfimisetrinu.

Nánar á  samfélagsmiðlunum

Lífshlaupið á Fésbók

Lífshlaupið á Instagram

Tístaðu um Lífshlaupið