Lífshlaupið 2018

Lífshlaupið 2016
Lífshlaupið 2016

Lífshlaupið - landskeppni í hreyfingu, verður ræst í ellefta sinn miðvikudaginn 31. janúar næstkomandi.

Vinnustaðakeppnin stendur frá 31. janúar til 20. febrúar og grunnskóla- og framhaldsskólakeppnin frá 31. janúar til 13. febrúar. Opnað verður fyrir skráningu nokkrum vikum áður en að keppnin hefst. Það er því um að gera að vera tilbúinn þegar þar að kemur og hefja keppnina af krafti.

Einstaklingskeppni stendur enn yfir og að sjálfsögðu geta keppendur notast við sín notendanöfn áfram þegar að ný keppni hefst.

Allar upplýsingar má nálgast hjá Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands í síma 514-4000 eða með fyrirspurn á netfangið lifshlaupid@isi.is.

Vefsíða Lífshlaupsins