Lokahóf og tvíhöfði á JÁVERK-vellinum

Pepsi-deildar logo3 2010 portrett blatt
Pepsi-deildar logo3 2010 portrett blatt

Nú líður að lokum knattspyrnuvertíðarinnar og fer lokahóf yngri flokka fram á JÁVERK-vellinum á laugardag kl. 11:00.

Það verða pylsur í boði fyrir alla sem eru svangir, Svali og jafnvel Emmess-íspinnar ef sólin lætur sjá sig. Verðlaunaafhending, stuð og stemning.

Í kjölfarið af lokahófinu fara fram tveir leikir á vellinum þar sem strákarnir í meistaraflokki taka á móti Þór kl. 13:00 og stelpurnar fá Þór/KA í heimsókn kl. 16:00. Þetta eru síðustu heimaleikir liðanna á tímabilinu.

Hvetjum fólk til að mæta og eiga saman skemmtilegan fótboltadag.

Eftir lokahóf fara fram flokkaskipti og byrja æfingar á nýjum tímum og í nýjum flokkum á mánudag.