MTV Lübeck í heimsókn

Vinir okkar frá MTV Lübeck í Þýskalandi hafa dvalið á Selfossi með unglingalið sitt síðustu daga og nýtt þá í stífar æfingar og ferðast um nærumhverfið þess á milli.

Þeir mættu á akademíuæfingar hjá Atla Kristins og voru duglegir að lyfta lóðum.

Þeir spiluðu fjölmarga æfingaleiki, meðal annars við lið Selfyssinga, Stjörnuna og Vals. Auk þess fóru þeir til Vestmannaeyja og spiluðu þar við 3. flokk og skoðuðu eyjuna með heimamönnum sem tóku vel á móti þeim eins og þeim einum er lagið.

Gullni hringurinn var að sjálfsöðu tekinn og síðan fóru þeir og skoðuðu kúabúið á Brúnastöðum, Seljalandsfoss, skelltu sér í Reykjaböð og margt fleira.

Strákarnir og þjálfarateymið Mirko, Erik, Eckart og Marcus voru hæstánæðir með móttökurnar og ferðina í heild.