Nýr hópleikur hefst á laugardag – Utanlandsferð í verðlaun

Nýr hópleikur, vorleikur Selfoss getrauna, hefst laugardaginn 23. janúar. Aðalverðlaun eru ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum.

Hægt er að skrá sig til leiks í Tíbrá, Engjavegi 50, þar sem er opið hús frá kl. 11-13 alla laugardaga í vetur. Einnig er hægt að skrá sig í hópleikinn á slóðinni www.tippleikur.is/selfoss.

Styrkjum félagstengslin og mætum í Tíbrá á laugardagsmorgnum. Þar er alltaf heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðnabakaríi. Láttu vini þína, félaga og fjölskyldu vita og hvettu alla til að mæta með okkur. Við hlökkum til að sjá þig.