Önnur umferð Íslandsmótsins í motocross á Akranesi

Önnur umferð í Íslandsmótinu í motocrossi fór fram 8. júlí síðastliðinn. Mótið var haldið á vegum VÍFA á Akranesi þar sem rúmlega 70 keppendur voru skráðir til leiks. Félagsmenn frá UMFS enduðu palli í nokkrum flokkum. Eric Máni Guðmundsson sigraði unglingaflokkinn, Alexendar Adam Kuc endaði í öðru sæti í flokknum MX2, Ásta Petrea Hannesdóttir endaði í þriðja sæti í kvenna flokk og Ragnheiður Brynjólfsdóttir endaði í þriðja sæti kvenna í 30+. Þriðja umferð Íslandsmótsins fer svo fram á svæði KKA á Akureyri laugardaginn 22. júlí n.k.