Örn með silfur á Smáþjóðaleikunum

Örn Davíðsson kastar spjotinu enn einu sinni til verðlauna
Örn Davíðsson kastar spjotinu enn einu sinni til verðlauna

Selfyssingurinn Örn Davíðsson vann til  silfurverðlauna í spjótkasti karla á Smáþjóðaleikunum með kasti upp á 68,08m. Frábær árangur hjá Erni sem er 35 ára gamall og enn í fremstu röð.  Amir Papazi sigraði með 69,68m löngu kasti.  Örn á HSK metið í karlaflokki sem hann náði á Smáþjóðaleikunum fyrir tveimur árum þegar hann kastaði 71,69m.