Örn Þrastarson ráðinn þjálfari meistaraflokks karla

Örn Þrastarson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla.

Örn er Selfyssingum að góðu kunnur en hann spilaði með meistaraflokk og síðustu 20 ár hefur hann þjálfað hjá deildinni. Hann hefur þjálfað meistaraflokk kvenna, u-lið karla, 3. flokk karla og kvenna ásamt mörgum yngri flokkum. Síðustu ár hefur Örn einnig starfað sem íþróttastjóri deildarinnar.

Mikil ánægja er með ráðningu Arnar sem mun leiða áframhaldandi uppbyggingu meistaraflokksins hjá okkur næstu árin.

„Ég er mjög spenntur að takast á við þetta spennandi verkefni. Ég tek við góðu búi frá Carlosi en ég hinsvegar þekki þessa stráka vel, veit hvað í þeim býr og er fullviss um að þeir eigi mörg skref inni og það séu bjartir tímar framundan.“ sagði Örn Þrastarson við undirritun samnings.

Örn ásamt Hannesi Höskuldssyni fyrirliða meistaraflokks og Þóri Haraldssyni formanni Handknattleiksdeildar