Perla og Harpa bætast í hópinn

Stelpurnar á Selfossi hafa ákveðið að halda tryggð við klúbbinn á komandi tímabili og nú munu þær Perla Ruth Albertsdóttir og Harpa Valey Gylfadóttir bætast í hópinn.

Ekki þarf að hafa mörg orð um það hversu mikið þær stöllur munu koma til með að styrkja nú þegar sterkan hóp Selfossliðsins. Perla er að snúa aftur á Selfoss eftir góð ár hjá Fram þar sem hún vann til fjölda titla og festi sig endanlega í sessi sem fastamaður í íslenska landsliðinu. Hún er einn af leikja- og markahæstu leikmönnum Selfoss frá upphafi með 457 mörk í 137 leikjum.

Harpa gengur hins vegar til liðs við Selfoss frá ÍBV þar sem hún hefur leikið allan sinn feril, en flytur nú upp á fasta landið til að taka slaginn með Selfoss. Harpa hefur verið lykilleikmaður í liði ÍBV undanfarin ár og skoraði 71 mark í 25 leikjum fyrir liðið á síðasta tímabili þar sem ÍBV varð bæði deildar- og bikarmeistari. Þá hefur hún einnig leikið með öllum yngri landsliðum Íslands sem og A-landsliðinu.

Perla og Harpa verða báðar á Selfossi næstu þrjú árin í það minnsta og það er því óhætt að segja að þrátt fyrir svekkelsið í umspilinu séu spennandi tímar framundan á Selfossi!

„Það er okkur mikið gleðiefni að þær stelpur sem höfðu tækifæri til að leika í efstu deild á næsta tímabili ætli að halda tryggð við klúbbinn og þessi viðbót mun bara styrkja okkar þegar sterka hóp,“ sagði Eyþór Lárusson, þjálfari liðsins.

„Ég er með stórt Selfoss hjarta og er ég því spennt að taka slaginn með uppeldisfélaginu í þessu mikilvæga verkefni sem er framundan,“ bætti Perla Ruth við.

„Selfoss er með mikinn metnað, frábæra umgjörð, efnilegan leikmannahóp og gríðarlega spennandi þjálfarateymi. Við ætlum okkur beina leið aftur upp í Olísdeildina og stefnum á að festa liðið í sessi sem eitt af betri liðum landsins á skömmum tíma.“

„Það er margt spennandi og skemmtilegt framundan í klúbbnum og er ég virkilega spennt að spila aftur fyrir framan frábæru stuðningsmennina á Selfossi,“ sagði Perla að lokum.