Samstarfssamningur um Brúarhlaupið endurnýjaður

Endurnýjað samstarf innsiglað. Á myndinni eru Hjalti Jón Kjartansson formaður Frjálsíþróttadeildar Selfoss, Nína Pálsdóttir útibússtjóri Landsbankans á Selfossi og Arnrún Sigurmundsdóttir þjónustustjóri Landsbankans á Selfossi.
Endurnýjað samstarf innsiglað. Á myndinni eru Hjalti Jón Kjartansson formaður Frjálsíþróttadeildar Selfoss, Nína Pálsdóttir útibússtjóri Landsbankans á Selfossi og Arnrún Sigurmundsdóttir þjónustustjóri Landsbankans á Selfossi.

Landsbankinn á Selfossi og Frjálsíþróttadeild Ungmennafélagsins Selfoss hafa endurnýjað samstarf sitt og verður bankinn áfram einn af helstu samstarfsaðilum bæði Brúarhlaupsins á Selfossi og frjálsíþróttadeildarinnar. Skrifað var undir endurnýjaðan samstarfssamning til tveggja ára í Landsbankanum á Selfossi.

Landsbankinn og Frjálsíþróttadeildin hafa átt farsælt samstarf um langt árabil. Með áframhaldandi samstarfi vill Landsbankinn sýna í verki stuðning sinn við forvarnarstarf, æskulýðsmál og íþróttastarf í samfélaginu.

Margir Selfyssingar muna eflaust eftir Landsbankahlaupinu sem Landsbankinn stóð áður fyrir á Selfossi með aðstoð frjálsíþróttadeildarinnar við framkvæmd þess. Hlaupið var fyrst haldið árið 1986 í tilefni af 100 ára afmæli bankans og varð síðan árlegur viðburður þar til Brúarhlaupið tók við árið 1991, þegar Ölfusárbrú fagnaði 100 ára afmæli sínu.

Frá þeim tíma hefur samstarfið tekið nýja stefnu þar sem Landsbankinn hefur stutt við Brúarhlaupið með fjárframlögum, aðstöðu og aðkomu starfsfólks bankans við framkvæmd hlaupsins