Selfoss með 11 gull, 10 silfur og 10 brons á 3. bikarmóti TSÍ

Á 3. og síðasta bikarmóti í TKÍ bikarmótaröðinni 2011-2012, sem fór fram 21.-22. apríl sl., sendi Selfoss 37 keppendur til leiks. Er skemmst frá því að segja að af þessum 37 keppendum fóru 31 á pall. Allir keppendur stóðu sig með stakri prýði og voru félagi sínu til mikils sóma. Selfoss átti keppendur í flestum þyngdar-, belta- og aldursflokkum og komust þeir á pall í nánast öllum flokkum. Daníel Jens Pétursson, yfirþjálfari deildarinnar keppti í seniorflokki -80 kg og sigraði með yfirburðum, hlaut 16 stig gegn 5 og 15 gegn 8 stigum. Hlaut hann bikar að launum fyrir mestan mun stiga í seniorflokki. Daníel Jens er að margra mati einn besti taekwondomaður á Íslandi. Daníel Bergur Ragnarsson sigraði sinn þyngdarflokk og fékk bik-ar sem stigahæsti keppandi mótsins í juniorflokki. Í formi hlaut Guðrún Halldóra Vilmundardótti gull í sínum þyngdarflokki. Nánari úrslit má sjá á heimasíðu umfs.is/taekwondo.

Gríðarlegur uppgangur hefur verið í taekwondoíþróttinni á Selfossi síðustu misseri eins og sést á árangri deildarinnar á mótum. Deildin er jafnframt orðin ein af stærstu deildum landsins.

 

Úrslit. Laugardagur (minior) Sparring:    
Selfoss Sigurður Gísli Christensen 1 Gull
Selfoss Einar Ingi Ingvarsson 1 Gull
Selfoss Jón Marteinn Arngrímsson 1 Gull
Selfoss Bjarni Snær Gunnarsson 1 Gull
Selfoss Jökull Logi Gunnlaugsson 2 Silfur
Selfoss Gisli Rúnar Gíslason 2 Silfur
Selfoss Óli Þorbjörn Guðbjartsson 2 Silfur
Selfoss Gunnar Hans Júlíusson 2 Silfur
Selfoss Björn Jóel Björgvinsson 2 Silfur
Selfoss Birgitta Tommýsdóttir Skille 2 Silfur
Selfoss Halldór Gunnar 2 Silfur
Selfoss Þór Davíðsson 3 Brons
Selfoss Þórarinn Helgi Jónsson 3 Brons
Selfoss Sigurgrímur Vernharðsson 3 Brons
Selfoss Gíllý Ósk Gunnarsdóttir 3 Brons
Selfoss Rúnar Baldursson 3 Brons
Úrslit: Laugardagur (minior)- poomsae:      
Selfoss Gíllý Ósk Gunnarsdóttir 1 Gull
Selfoss Freyr Hreinsson   3 Brons

 

 

Gadett: Úrslit – Sparring:      
Selfoss Nikulás G. Torfason 1 gull
       
Selfoss Davíð Arnar Pétursson 2 silfur
Selfoss Sigurjón Bergur Eiríksson 2 silfur
       
Selfoss Dagný María Pétursdóttir 3 brons
       
Junior Úrslit – Sparring:      
Selfoss Daníel Bergur Ragnarsson 1 gull
Selfoss Símon Bau Ellertsson 2 silfur
Selfoss Jón Páll Guðjónsson 3 brons
       
Senior Úrslit – sparring:      
Selfoss Sunna Valdemarsdóttir 1 gull
Selfoss Sara Hvanndal Magnúsdóttir 1 gull
Selfoss Daníel Jens Pétursson 1 gull
Selfoss Þorvaldur Óskar Gunnarsson 3 brons
Selfoss Víðir Reyr Björgvinsson 3 brons
       
Úrslit poomsae (gadett):      
Selfoss Ólöf Ólafsdóttir 3 brons
       
Úrslit frá poomsae (junior, senior/superior):      
Selfoss Guðrún Halldóra Vilmundard 1 gull