Selfyssingar á stórmóti

Mynd/HSÍ
Mynd/HSÍ

Selfyssingarnir Jón Þórarinn Þorsteinsson, Ísak Gústafsson og Tryggvi Þórisson eru mættir með 21 árs landsliði Íslands til Aþenu í Grikklandi þar sem þeir munu taka þátt í heimsmeistaramóti 21 árs landsliða. Liðið hélt af landi brott í gær og hefja þeir leik á morgun þriðjudag klukkan 8:00 gegn Marokkó.

Allar helstu upplýsingar um mótið má nálgast í flottri samantekt Handbolta.is sem birtist hér: https://handbolti.is/langtima-markmidid-er-ad-komast-i-8-lida-urslit-a-hm/

Óskum við strákunum góðs gengis og flytjum frekari fréttir af þeim þegar líður á mótið.