Um síðastliðna helgi fóru U16 og U15 ára landslið Íslands til Færeyja til að leika við heimamenn í æfingaleikjum. Áttum við Selfyssingar þar sex fulltrúa. Í U16 ára landsliðinu voru Kári Einarsson og Sveinn Ísak Hauksson og í U15 ára landsliðinu voru þeir Daníel Hilmar Hilmarsson, Gabríel Fannar Ólafsson, Ólafur Eldur Ólafsson og Sölvi Berg Auðunsson.
Liðin léku tvo leiki hvort og vann Ísland báða leikina í hvorum aldursflokk. Fyrri leikurinn hjá U16 fór 31-24 og síðari leikurinn vannst 31-26. Fyrri leikurinn hjá U15 fór 30-28 og síðari leikurinn 31-24.
Stór hópur foreldra fylgdi strákunum til að sjá þá leika sína fyrstu landsleiki.
Óskum við strákunum til hamingju með fyrstu landsleikina og gaman verður að fylgjast með þeim í framtíðinni bæði með landsliðinu og Selfoss.