Sundnámskeið sumarið 2017

Sumarnámskeið
Sumarnámskeið

Vornámskeið sunddeildar Umf. Selfoss verður haldið í Sundhöll Selfoss 12.-21. júní. Kennt verður fyrir hádegi virka daga alls 8 skipti í 45 mínútur í senn.

Námskeiðið er fyrir  börn fædd 2012 og eldri. Börnin koma ofan í laugina án foreldra (nema ástæða sé til annars). Athygli er vakin á að það er hópur í boði fyrir börn sem eru byrjuð í skóla og vilja/þurfa að bæta sundkunnáttuna.

Kennari á námskeiðinu verður Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari sem kennt hefur á þessum námskeiðum mörg síðustu ár.

Námskeiðsgjaldið er kr. 14.000 og ef annað sysktini kemur þá greiðir það kr. 12.000.

Skráning á netfangið guggahb@simnet.is eða í síma 848-1626. Senda þarf fullt nafn barns og fæðingardag, nafn foreldris, gsm númer og tölvupóstfang. Einnig er gott að fá upplýsingar um það hvort barnið er óhrætt í vatni og getur fleytt sér kútlaust eða ef það er óöruggt og kafar ekki/lítið.