Þorlákur Breki og Sesar Örn á reynslu í Danmörku.

Sigurður Reynir, Þorlákur Breki og Sesar Örn
Sigurður Reynir, Þorlákur Breki og Sesar Örn
Þeir Sesar Örn Harðarson og Þorlákur Breki Baxter æfa þessa dagana með danska úrvalsdeildarliðinu Lyngby Boldklub. Sesari og Breka var boðið að koma og æfa með U19 ára liði félagsins ásamt því að skoða aðstöðuna í kringum félagið.
Þeim til halds og trausts er þjálfari þeirra í 2.flokki karla Sigurður Reynir Ragnhildarson.