Þriðja sætið er okkar

Screenshot 2019-09-16 at 08.25.51
Screenshot 2019-09-16 at 08.25.51

Selfosskonur tryggðu sér 3. sæti Pepsi-Max deildar kvenna í dag þegar þær gerðu góða ferð á Meistaravelli.

Allison Murphy gerði bæði mörk leiksins og tryggði Selfossi 0-2 sigur en þessi lið áttust við í bikarúrslitum á Laugardalsvelli í síðasta mánuði.

Selfoss er með 31 stig og ljóst að þær geta hvorki farið ofar né neðar í töflunni og er 3. sætið því þeirra. Magnaður árangur hjá Selfossliðinu sem vann bikarinn í framlengingu.