Tveir erlendir leikmenn í Selfoss

101919373_2671340469851649_2953576196878630912_n
101919373_2671340469851649_2953576196878630912_n

Handknattleiksdeildin hefur samið við tvær erlendar stelpur, þær Ivana Raičković og Lara Zidek, sem báðar koma frá Førde IL í Noregi. Ivana er 19 ára gömul frá Svartfjallalandi og er efnilegur línumaður sem hefur verið viðloðandi U-21 landsliði Svartfellinga. Lara er 23 ára gömul skytta frá Króatíu en hún getur leyst allar stöðurnar fyrir utan.

Handknattleiksdeildin er gríðarlega ánægð að hafa náð þessum tveimur sterku leikmönnum. Það er ljóst að þær Ivana og Lara munu styrkja meistaraflokk kvenna næstkomandi tímabil, en liðið var aðeins hársbreidd frá því að komast upp í Olísdeildina á síðastliðnu tímabili.


Mynd: Ivana Raičković (t.v.) og Lara Zidek (t.h.)