UMFÍ | Frjálsíþróttaskólinn á Selfossi

Frjálsíþróttaskóli 2019 I
Frjálsíþróttaskóli 2019 I

Í sumar verður Frjálsíþróttaskóli UMFÍ starfræktur í tólfta sinn á HSK svæðinu. Skólinn verður haldinn á Selfossi dagana 22.-26. júní.

Skólinn er ætlaður fyrir börn á aldrinum 11 til 18 ára. Ungmennin koma saman um miðjan dag á mánudegi og skólanum lýkur um hádegi á föstudegi í sömu viku.

Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg, í bland við frjálsíþróttaæfingar er til dæmis farið í sund, ýmis konar leiki s.s. ljósmyndaratleik og hópefli, haldnar kvöldvökur og endar skólinn svo með frjálsíþróttamóti.

Þáttökugjald í skólann er 25.000 kr. (20.000 kr. fyrir systkini) en innifalið í því er kennsla, fæði, gisting ofl. Aðalumsjónarmenn með skólanum 2020 líkt og undafarin ár eru Ágústa Tryggvadóttir og Fjóla Signý Hannesdóttir. Einnig munu fleiri þjálfarar og aðstoðarmenn vinna við skólann. Lagt er upp með að fagmenntaðir kennarar sjái um kennsluna á hverjum stað til að tryggja sem besta kennslu fyrir ungmennin. Í lok námskeiðsins fá öll ungmennin viðurkenningarskjal til staðfestingar um þátttökuna.

Skólinn hefur fengið eindæma góð viðbrögð og ungmennin hafa farið sátt heim eftir lærdómsríka, krefjandi en umfram allt skemmtilega viku.

Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki í að opna augu ungmenna fyrir ágæti íþróttaiðkunar og styðja fjölmargar rannsóknir þá fullyrðingu að ungmenni sem stunda íþróttir leiðast síður út í óreglu síðar á lífsleiðinni. Síðast en ekki síst öðlast ungmennin tækifæri til að kynnast hvert öðru og mynda tengslanet og auka hæfni sína í mannlegum samskiptum.

Undanfarin ár hefur skólinn oft verið full bókaður en hámarkið er við 60 iðkendur. Því er mikilvægt að tryggja sér snemma pláss í skólanum. Skráning fer fram í gegnum tölvupóst frjalsithrottaskoli@gmail.com. Pósturinn þarf að innihalda eftirfarandi: Nafn, heimilisfang, staður, kennitala (barns), félag (ef barnið er að æfa með félagi), sími, netfang, nafn forráðarmanns, sími forráðarmanns og ofnæmi eða annað sem gott er að vita. Við erum búin að stofna hóp á fésbókinn, Frjálsíþróttaskóli á Selfossi 2020. Þar getið þið fylgst með skólanum. Við setjum inn tilkynningar og myndir á hópinn. Ef það eru einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband.