Ungir Selfyssingar á faraldsfæti

Handboltakapparnir Sveinn Ísak Hauksson og Kári Einarsson hafa staðið í ströngu síðustu vikurnar. Þeir luku keppnistímabilinu með 4. flokki um miðjan maí og héldu þá til Þýskalands til að spila fyrir félagið MTV Lübeck, vinafélag Selfoss.

Íþróttastjóri liðsins, Marcus Sievert, óskaði eftir kröftum þeirra í baráttunni um sæti í efstu deild. Þeir dvöldu þar fyrst í tvær vikur, æfðu og léku tvo leiki með liðinu. Þrátt fyrir tap í báðum leikjum var vonin þó ekki úti. Í millitíðinni flugu þeir til Íslands til að taka þátt í landsliðsverkefni þar sem þeir léku æfingaleiki gegn Færeyjum. Að því loknu héldu þeir aftur til Þýskalands og tóku þátt í svokallaðri wild card-helgi, þar sem liðið lék þrjá úrslitaleiki um sæti í efstu deild. Sveinn og Kári létu sitt ekki eftir liggja og vann liðið alla leikina sem tryggði því sæti í B-Jugend Bundesliga, efstu deild unglingaliða.

Marcus fór fögrum orðum um drengina þegar rætt var við hann í síma. Hann hrósaði þeim ekki einungis fyrir frammistöðuna á vellinum heldur einnig fyrir jákvætt viðmót og hversu vel þeir féllu inn í hópinn. „Að komast upp í efstu deild er afar mikilvægt fyrir félagið,“ sagði Marcus og bætti við að hann vonaðist til að samstarf MTV Lübeck og Selfoss héldi áfram á komandi árum.

Kári og Sveinn Ísak ásamt liðsfélögum sínum í MTV Lübeck