Unglingadómaranámskeið KSÍ á Selfossi 26. febrúar

ksi-merki
ksi-merki

Unglingadómaranámskeið KSÍ verður haldið á Selfossi í Iðu þriðjudaginn 26. febrúar. Námskeiðið er haldið af KSÍ í samvinnu við knattspyrnudeild Selfoss og hefst kl. 19:00. Námskeiðið stendur í um tvær og hálfa klukkustund og er öllum opið sem náð hafa 15 ára aldri. Á námskeiðinu verður aðaláhersla lögð á knattspyrnulögin, en auk þess verður einnig farið yfir ýmis konar kynningarefni, fræðsluefni, skýringar og skýringarmyndir. Námskeiðinu lýkur með skriflegu prófi viku síðar eða eftir samkomulagi. Sá sem lýkur unglingadómaraprófi hlýtur rétt til að dæma í 4. flokki og neðar ásamt því að vera aðstoðardómari upp í 2. flokk. Þetta er eina unglingadómaranámskeiðið sem haldið verður á Suðurlandi á árinu. Námskeiðið er ókeypis. Skráning er hafin á magnus@ksi.is