Líf og fjör var þegar handknattleiksdeild Selfoss gerði upp liðið tímabil á laugardagskvöldið í Hvíta Húsinu. Dagskráin var með hefðbundnu sniði, veðrið með skásta móti og hin lauflétti Ingvar Örn Ákason stýrði partýinu. Verðlaun og viðurkenningar veitt, vel heppnað steikarhlaðborð frá Hvíta Húsinu, skemmtidagskrá meistaraflokks karla, happdrætti, uppboð og kvöldinu var svo lokað með trúbadornum Hlyni Héðins.

Einn af fyrstu dagskrárliðum lokahófs er útnefning á félaga ársins, ein stærstu verðlaun sem veitt eru á hófinu. Guðbjörg Gunnarsdóttir hlaut titilinn í ár og mun því varðveita Hildarbikarinn næstu tólf mánuði. Guðbjörg er hrikalega öflugur félagi og sjaldgæf sjón að mæta á leik í Set höllinni þar sem hún er ekki löngu mætt. Íþróttalíf á Íslandi er knúið áfram með kröftum sjálfboðaliða og það er ómetanlegt að hafa fólk eins og Guðbjörgu með sér í liði.
Ár hvert eru einstaklingsverðlaun veitt, hér eru verðlaunahafar lokahófs hkd. Selfoss 2026:

U-lið
Markakóngur - Hákon Garri Gestsson, 128 mörk
Leikmaður ársins - Hákon Garri Gestsson

Meistaraflokkur kvenna
Markadrottning - Mia Kristin Syverud, 108 mörk
Sóknarmaður ársins - Mia Kristin Syverud
Varnarmaður ársins - Adela Eyrún Jóhannsdóttir
Efnilegasti leikmaðurinn - Emelía Ósk Aðalsteinsdóttir
Baráttubikarinn - Hulda Hrönn Bragadóttir
Leikmaður ársins - Hulda Dís Þrastardóttir

Meistaraflokkur karla
Markakóngur - Hannes Höskuldsson, 161 mark
Sóknarmaður ársins - Tryggvi Sigurberg Traustason
Varnarmaður ársins - Elvar Elí Hallgrímsson
Efnilegasti leikmaðurinn - Anton Breki Hjaltason
Baráttubikarinn - Alexander Hrafnkelsson
Leikmaður ársins - Hannes Höskuldsson

Leikjaviðurkenningar
Carlos Martin Santos, 100 leikir (þjálfari)
Anton Breki Hjaltason, 100 leikir
Jason Dagur Þórisson, 100 leikir
Valdimar Örn Ingvarsson, 100 leikir