​Glæsilegt Landsbankamót á Selfossi

Handbolti - 7. flokkur kk II
Handbolti - 7. flokkur kk II

Um síðastliðna helgi r fram á Selfossi hið árlega Landsbankamót í handbolta þar sem keppt er í 7. flokki drengja og stúlkna 10 ára og yngri. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er jafnframt hluti af mótaröð HSÍ. Leikið er eftir minniboltareglum, mörk eru ekki talin en áherslan er á að allir spili og skemmti sér innan vallar sem utan.

Keppendur á mótinu á Selfossi um helgina voru 815 og búast má við að annar eins fjöldi af foreldrum og liðstjórum hafi heimsótt Selfoss þessa daga. Alls voru 164 lið skráð til leiks frá 18 félögum, en leikið var í íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsi FSu. Liðin gistu í Vallaskóla og voru þar í mat. Á kvöldin voru svo kvöldvökur þar sem Ingó veðurguð sjá um stuðið.

Mótið hófst á föstudegi kl. 16:00 og stóð fram yfir hádegi á sunnudag. Það voru um 80 starfsmenn sem komu að mótinu sem krefst mikillar skipulagningar. Þökk sé öflugu foreldrastarfi hjá deildinni og reynslu í svona mótahaldi að dæmið gengur upp. Mótið er fjölmennasta íþróttamót sem haldið er á Suðurlandi ár hvert og fjölmennasta handboltamót á Íslandi.

Landsbankinn á Selfossi er sem fyrr aðalstyrktaraðili yngri flokka starfs handknattleiksdeildar og mótið ber nafn bankans áttunda árið í röð. Handknattleiksdeild Umf. Selfoss þakkar Landsbankanum á Selfossi frábæran stuðning undanfarin ár.

Myndir af mótinu má nálgast á Draumalidid.is.