Handknattleiksdeild Selfoss hefur gert samning við Adina Ghidoarca, en hún er 28 ára rúmensk stelpa sem spilar alla jafna sem vinstri skytta.
Hún æfði með liðinu í sumar og stóð sig það vel að henni var boðinn samningur við félagið. Adina spilaði áður í Færeyjum og Tyrklandi.
Þess má geta að fyrir hjá Selfoss er landa hennar Carmen Palamariu og verða þær báðar í sviðsljósinu með Selfoss á Ragnarsmótinu í kvöld.
---
Adina t.v. og Carmen.
Ljósmynd: FimmEinn.is