Alexander Adam sigraði í unglingaflokki

Mótokross - Alexander Adam Kuc unglingaflokkur
Mótokross - Alexander Adam Kuc unglingaflokkur

Önnur umferð Íslandsmeistaramótsins í mótokross fór fram á Akureyri þann 10. júlí í blíðskaparveðri.

Alexander Adam Kuc tók þátt í tveimur flokkum, sigraði í unglingaflokki og lenti í þriðja sæti í MX2. Eric Máni Guðmundsson lenti öðru sæti í unglingaflokki yngri. Ragnheiður Brynjólfsdóttir lenti í þriðja sæti í kvennaflokki 30+.

Umf. Selfoss/rb

---

Mynd með frétt: Alexander Adam (fyrir miðju) leiðir keppni til Íslandsmeistara í unglingaflokki.
Mynd fyrir neðan frétt: Eric Máni (t.v.) varð annar í unglingaflokki yngri.
Ljósmyndir: Umf. Selfoss