Alexander Egan framlengir við Selfoss

Alexander Már Egan - 2019mars
Alexander Már Egan - 2019mars

Örvhenti hornamaðurinn Alexander Már Egan hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss til tveggja ára. Alexander er uppalinn Selfyssingur og spilaði sinn 100. leik fyrir félagið nú um daginn. Deildin er gríðarlega ánægð að Alexander skuli framlengja við félagið og verður hann áfram einn af lykilmönnum liðsins.


Mynd: Alexander Már Egan
ÁÞG