Bikarmót unglinga í hópfimleikum

bikarmot-ung17
bikarmot-ung17

Bikarmót unglinga í hópfimleikum fór fram helgina 25.-26. febrúar.  Mótið fór fram í Versölum, íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi, þar tóku þátt um 900 keppendur á aldrinum 9 til 13 ára.

Fimleikadeild Selfoss sendi alla sína keppnishópa á þessum aldri á mótið, alls ellefu lið. Margir ungir iðkendur voru að stíga sín fyrstu skref í keppni og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Mótið hófst með keppni í 5. flokki stúlkna snemma á laugardagsmorgun. Vegna veðurs seinkaði mótinu á sunnudeginum svo því lauk ekki fyrr en seint um kvöldið með keppni í 4. flokki.

Allir iðkendur fimleikadeildar Selfoss stóðu sig með mikilli prýði og voru félaginu til sóma. Eitt lið Selfyssinga nældi sér í bikarmeistaratitil en það var blandað lið í 3. flokki.