Borðtennisdeild Selfoss valin lið ársins

Borðtennisdeild Umf. Selfoss var á föstudaginn valin lið ársins í opinni kosningu.

Árangur liðsins á tímabilinu var glæsilegur. Selfoss endaði í efsta sæti í sínum riðli í 3. deild og vann síðan bæði undanúrslit og úrslitaleik. Með sigrinum tryggði liðið sér sæti í 2. deild í fyrsta sinn í sögu borðtennisdeildar Selfoss.

Leikmennirnir sem tóku þátt í úrslitakeppninni voru Anton, Stefán Orlandi og Rubén, sem stóðu sig frábærlega þegar mest á reyndi.

Um leið vill deildin sérstaklega þakka Almari Elí, Þorgils, betur þekktum sem Gilla, og Heimi fyrir þeirra mikilvæga framlag. Án þeirra elju og dugnaðar hefði þessi árangur ekki verið náðst.

Borðtennisdeild Umf. Selfoss er afar þakklát fyrir hópinn og stolt af þessum sögulega árangri.