Bosníumaður í mark Selfyssinga

Handknattleiksdeild Selfoss hefur gert samning við hinn bráðefnilega bosníska markvörð Anadin Suljaković.

Anadin er aðeins 19 ára gamall en er þrátt fyrir það reynslumikill markmaður. Hann hefur spilað með liði RK Maglaj í Bosníu og Hersegóvínu, Al Sadd SC í Katar ásamt því að hafa spilað með yngri landsliðum Katar frá árinu 2015.

Handknattleiksdeild Selfoss er afar ánægð með að hafa tryggt sér krafta Anadin fyrir komandi átök í Olís-deildinni í vetur. Deildin er þess fullviss að Anadin eigi eftir að standa sig með prýði fyrir félagið.

---

Anadin ber vínrauða litinn vel á bökkum Ölfusár.
Ljósmynd: Umf. Selfoss