Smávæginlegar breytingar hafa verið gerðar á heimasíðu Ungmennafélagsins með það að markmiði að gera hana notendavænni.
Sem dæmi, þá má nálgast upplýsingar allra starfsmanna félagsins ef smellt er á "Starfsfólk" efst á síðunni og síðan valið áfram "Skrifstofa Umf. Selfoss" eða "Selfossvöllur"
Deildirnar hafa einnig fengið uppfærslu, en nú má finna allar helstu upplýsingar í fellilistum á aðalsíðum deilda.

Einnig má finna hjá sumum deildum ýmislegt sem að gerir lífið auðveldara t.d. má smella beint á myndina af "Guggusundi" til að fara inná Abler síðu Guggusunds
Deildirnar hafa nú fengið verkefni að uppfæra síðurnar þannig að heimasíða félagsins verði meira notuð
Að lokum má svo nefna hvíta hnappinn uppi í hægra horninu á síðunni þar sem stendur "Íslenska". Hægt er að smella á hann og velja fjöldan allan af tungumálum til að þýða síðuna. Það er liður í því að gera síðuna aðgengilegri fyrir þá sem ekki tala Íslensku.