Cornelia Hermannsson framlengir

Cornelia Hermansson hefur framlengt við handknattleiksdeild Umf. Selfoss til tveggja ára. Cornelia kom til Selfoss árið 2022 frá sænska liðinu Kärra HF en áður hafði hún einnig leikið með Önnereds HK.
 
Handknattleiksdeildin er gríðarlega ánægð með að Cornelia skuli halda tryggð við félagið og verður spennandi að fylgjast með henni ásamt meistaraflokk kvenna í Olísdeildinni á komandi tímabili.