Umf. Selfoss og Domino’s hafa undirritað samstarfssamning sem gerir Domino’s að Gull samstarfsaðila félagsins.
Samningurinn er mikilvægur fyrir félagið í heild sinni og mun nýtast fjölmörgum deildum Umf. Selfoss. Með samstarfinu verður Domino’s sýnilegur samstarfsaðili félagsins og styður um leið við fjölbreytt íþróttastarf barna, ungmenna og fullorðinna á Selfossi.
Umf. Selfoss er eitt stærsta fjölgreinafélag landsins og innan félagsins starfa fjölmargar deildir með þúsundir iðkenda. Það skiptir félagið miklu máli að eiga öfluga samstarfsaðila í nærumhverfinu sem vilja taka þátt í að styrkja íþrótta- og félagsstarf í Árborg.
Samstarfið við Domino’s mun meðal annars nýtast í tengslum við viðburði, mót, fjáraflanir og starf deilda félagsins. Þá verður Domino’s sýnilegt á sameiginlegum miðlum Umf. Selfoss og í tengslum við starf félagsins á komandi misserum.
Umf. Selfoss þakkar Domino’s kærlega fyrir stuðninginn og hlakkar til samstarfsins.
Við viljum svo hvetja alla félagsmenn til að fá sér Domino's pizzu um helgina ;)
Umf. Selfoss ❤️ Domino’s
