Egill keppir á Tokyo Grand Slam

P1050854
P1050854

Selfyssingurinn Egill Blöndal, tvöfaldur Íslandsmeistari í júdó árið 2017, er á leið á sterkasta mót í heiminum í bardagaíþróttum Tokyo Grand Slam 2017.

Mótið fer fram í Tokyo um næstu helgi og mun Egill keppa á sunnudeginum 3. desember í -90 kg þyngdarflokki.

Þá verða í framhaldinu eftir helgina æfingabúðir með sterkustu bardagamönnum heims, Japansmeisturum, Ólympíumeisturum og Heimsmeisturum.

Með Agli til Tokyo fer Garðar Skaptason þjálfari hjá Umf. Selfoss.

Hægt er að fylgjast með mótinu í beinni útsendingu í gengum tengil á heimasíðu Júdósambands Íslands www.jsi.is og www.ijf.org.