Vormót yngri flokka í hópfimleikum

Stúlkurnar í 4. flokki 1 sigruðu A-deild og B-deild.
Stúlkurnar í 4. flokki 1 sigruðu A-deild og B-deild.

Helgina 3. - 5. maí fór fram Vormót yngri flokka, í umsjá Gerplu í Digranesi.
Mótið var mjög fjölmennt, keppni hófst á föstudegi og lauk seinni part sunnudags og skiptist mótið í 8 hluta.
Selfoss átti 6 lið á mótinu, eitt lið í kky, 3 lið í 4. flokki og 2 lið í 5. flokki. Þetta var þeirra síðasta mót á þessari önn en eldri flokkarnir okkar keppa á sínu vormóti næstu helgi og á Íslandsmóti síðustu helgina í maí.

í 4. flokki áttum við eitt lið í hverri deild, A-deild, B-deild og C-deild en skipt er í deildir á Haustmóti og haldast deildirnar út veturinn.
Í A og B deild kepptu 4. flokkur 1 í tveimur liðum.

Skemmst er frá því að segja að bæði liðin áttu frábæran dag, skiluðu hreinum æfingum og nutu sín vel. Þau urðu bæði í 1. sæti í sinni deild - til hamingju kæru iðkendur og þjálfarar með árangurinn og uppskeru eftir dugnað vetrarins.

Í C deildinni var 4. flokkur 2 að keppa, en þær eru á yngra ári í flokknum. Þær áttu líka góðan dag og höfðu foreldrar orð á því hversu miklum framförum þær væru að ná og leikgleðin var mikil. Þær lentu í 2. sæti á gólfi og skiluðu þar hreinum æfingum og í 6. sæti samanlagt af 11. liðum. Flott mót hjá stelpunum og það verður virkilega gaman að fylgjast með þeim á næsta ári, þegar þær verða á eldra ári í flokknum.

Strákarnir okkar í kky kepptu einnig um helgina en þeir kepptu í stökkfimi flokknum og kepptu þar við 8 lið. Strákarnir lentu í 3. sæti á dýnu en þeir hafa verið að vinna upp mikinn erfiðleika í vetur og náð framförum þar. Strákarnir sýndu flotta liðsheild og lentu samtals í 5. sæti af 9 liðum og eiga enn mikið inni.

5. flokkur keppti á sunnudaginn en þetta var þeirra annað mót á vegum Fimleikasambandsins. Á fyrra mótinu þeirra fengu þær viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna en þar sem þetta var þeirra síðasta mót á önninni fengu þær verðlaunapening í viðurkenningarskyni. Það var mjög gaman að fylgjast með flokknum en þær sýndu nýjar æfingar, stóðu sig vel og áttu góða upplifun. Á næsta ári keppa þær á yngra ári í 4. flokki og byrja þá að fá einkunnir og keppa í deildum.

 

Heilt yfir var þetta skemmtileg fimleikahelgi þar sem liðin fengu að sýna þær æfingar sem þau hafa verið að æfa í vetur fyrir framan fullan sal af áhorfendum, sem er stórt skref fyrir mörg. Innilega til hamingju með frammistöðuna - áfram Selfoss!