Fimm Selfyssingar með landsliðinu gegn Færeyjum

A-landslið karla
A-landslið karla

Snorri valdi sinn fyrsta A-landsliðshóp sem kemur saman í byrjun nóvember. 

Í hópnum eru 21 leikmaður og þar af eru fimm Selfyssingar. Það eru þeir Ómar Ingi Magnússon, Janus Daði Smárason, Elvar Örn Jónsson, Haukur Þrastarson og Bjarki Már Elísson.

Liðið mun leika tvo vináttuleiki gegn frændum okkar Færeyingum, þann 3. og 4. nóvember. Verða þetta einu leikir liðsins í undirbúningi hér á landi fyrir EM 2024.

Hópinn má sjá í heild sinni hér.