Fjórir framtíðarleikmenn semja við Selfoss

Knattspyrnudeild Selfoss hefur samið við fjórar ungar og efnilegar knattspyrnukonur út keppnistímabilið 2025. Þetta eru þær Ásdís Þóra Böðvarsdóttir 16 ára, Elsa Katrín Stefánsdóttir 17 ára, Embla Katrín Oddsteinsdóttir 17 ára og Hekla Rán Kristófersdóttir 18 ára.
„Við erum mjög ánægð að vera búin að semja við þessar ungu uppöldu stelpur. Að semja við þær er liður í því að hefja nýja uppbyggingu þar sem mun mæða mikið á ungum heimastelpum. Þessar stelpur hafa allar verið viðloðandi meistaraflokkinn undanfarin 2 ár og því eðlileg þróun að þær stígi næsta skref og verði partur af uppbyggingunni“ segir Björn Sigurbjörnsson þjálfari Selfoss.