Fjórir þjálfarar á þjálfaranámskeið í Austurríki

69559860_10156820053963720_9084937797726371840_n
69559860_10156820053963720_9084937797726371840_n

Síðastliðna viku, 25. ágúst - 1. september, fóru 4 þjálfarar frá Fimleikadeild UMF Selfoss á þjálfaranámskeið í Austurríki. 

Námskeiðið var mjög stíft, þar sem kennt var frá morgni til kvölds alla daga og farið yfir mikið efni. Þátttakendur og kennarar voru víðsvegar að frá Evrópu, en eftir námskeiðið fengu þjálfararnir diplómu fyrir UEG-level 1, sem er alþjóðleg viðurkenning.

Þjálfararnir, Kristín Hanna, Nadía Björt, Sesselja Sólveig og Þyrí koma því heim tilbúnar inn í nýjan fimleikavetur, með fullt af hugmyndum og reynslu í farteskinu.

Á myndinni eru stelpurnar ásamt öðrum þátttakendum á námskeiðinu.