Flyers Airport Hotel nýr samstarfsaðili Umf. Selfoss

Umf. Selfoss og Flyers Airport Hotel í Keflavík hafa hafið samstarf um ferðapakka fyrir þá sem eiga leið erlendis framundan.

Með því að bóka pakkann geta ferðalangar sameinað gistingu, bílageymslu og skutl á flugvöllinn og um leið stutt við starf félagsins, því 10% af hverri bókun á pakkanum rennur til Umf. Selfoss.

Við bókun þarf að taka sérstaklega fram að bókunin eigi að styrkja Umf. Selfoss.

Bókanir og nánari upplýsingar eru í boði í síma 644 7080 eða með tölvupósti á stay@flyershotel.com. Einnig má kynna sér hótelið á flyershotel.com.

Tilboðið gildir ekki á tímabilinu 1. júlí til 1. september.

Við þökkum Flyers Airport Hotel fyrir samstarfið og hvetjum félagsmenn og aðra stuðningsmenn til að nýta sér ferðapakkann þegar næsta ferð er bókuð!