Frábær árangur á Vormóti Fjölnis í frjálsum íþróttum

Hugrún Birna, Adda Sóley, Anna Metta og Bryndís Embla bættu sig allar á Vormóti Fjölnis
Hugrún Birna, Adda Sóley, Anna Metta og Bryndís Embla bættu sig allar á Vormóti Fjölnis

Nokkrir krakkar tóku þátt á Vormóti Fjölnis í vikuni en sumarstarfið er nú að fara í gang á fullum krafti. Eitt HSK met var sett og flestir voru að bæta sinn persónulega árangur í mörgum greinum.

 

Hugrún Birna Hjaltadóttir, 15 ára, stórbætti sig í 400m hlaupi er hún varð í öðru sæti á 62,31 sek. Hún varð einnig þriðja í sínum flokki í langstökki með 4,84m, hljóp á sínum besta tíma í 100m hlaupi, 13,62 sek og bætti árangur sinn í kúluvarpi.

Hjálmar Vilhelm Rúnarsson, 15 ára, bætti árangur sinn í öllum greinum sem hann tók þátt í. Hann sigraði 100m hlaup á 11,82 sek, langstökk með 5,80m og kúluvarp með 14,18m. Í stangarstökki varð hann í þriðja sæti með 2,80m.

Bryndís Embla Einarsdóttir, 14 ára, bætti sig og sigraði í kúluvarpi með 10,70m, hún varð önnur í langstökki með 4,89m og í 100m hlaupi bætti hún sig um rúmar 2 sekúndur er hún hljóp á 13,39sek.

Anna Metta Óskarsdóttir, 13 ára, setti HSK-met í 13 ára flokki þegar hún hljóp 400m grind á 80,14 sek og varð í þriðja sæti. Hún bætti sig einnig í langstökki með 4,87m og varð í öðru sæti, hún varð einnig önnur í 100m hlaupi á 14,01sek.

Adda Sóley Sæland, 13 ára, sigraði kúluvarp örugglega þegar hún kastaði 10,16m sem er henni besti árangur. Hún bætti sig einnig í langstökki með 4,57m.