Frístundamessa Árborgar

Frístundamessa 2019 - Auglýsing
Frístundamessa 2019 - Auglýsing

Frístundamessa Árborgar fer fram í íþróttahúsi Vallaskóla föstudaginn 6. og laugardaginn 7. september. Sem fyrr er viðburðurinn haldinn í góðu samstarfi við grunnskóla, íþróttafélög, æskulýðsfélög og aðra aðila sem vinna með frístundir barna á leik- og grunnskólaaldri í sveitarfélaginu.

Á frístundamessunni verður hægt að kynna sér þau fjölmörgu námskeið og æfingar sem standa til boða fyrir börn og unglinga í Sveitarfélaginu Árborg. Má þar nefna frítímastarf skáta, björgunarsveita, tónskóla, félagsmiðstöðvar og kirkju auk þess sem fjölmargar íþróttagreinar verða kynntar.

Frístundamessan verður í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum sem fram fer að morgni 6. september munu allir nemendur 2.-8. bekkja í grunnskólum Árborgar fylgja umsjónarkennurum sínum í íþróttahús Vallaskóla. Seinni hlutinn sem fram fer milli kl. 11 og 13 á laugardagsmorgun verður ætlaður foreldrum sem geta komið með börnum sínum til að kynna sér fjölbreytt íþrótta- og frístundastarf í sveitarfélaginu.

Boðið verður upp á grillaðar pylsur, ís, hoppukastala og svaladrykki á laugardaginn. Allir eru velkomnir en við bjóðum börn á grunnskólaaldri sem og börnum í elstu deildum leikskóla sérstaklega velkomin ásamt foreldrum og forráðamönnum þeirra.

Ekki láta þetta tækifæri framhjá ykkur fara til að kynnast öllu því góða frístundastarfi sem er í boði fyrir barnið þitt í Sveitarfélaginu Árborg.