Fulltrúar norrænna fyrirtækjaíþrótta heimsóttu Selfoss

isi-fyrirtaekjaithrottir
isi-fyrirtaekjaithrottir

Það voru góðir gestir frá norrænum samtökum fyrirtækjaíþrótta sem komu í heimsókn í Tíbrá föstudaginn 30. september að frumkvæði almenningsíþróttasviðs ÍSÍ.

Norrænir fulltrúar sambanda um fyrirtækjaíþróttir funduðu hér á landi um liðna helgi 30. september til 1. október. Á Norðurlöndunum eru sérstök sambönd um fyrirtækjaíþróttir en hér á Íslandi heyra þær undir almenningsíþróttasviði ÍSÍ. Verkefnin Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna eru dæmi um verkefni sem höfða til fyrirtækja og ÍSÍ bæði á og sér um.

Fundurinn var haldinn á Hótel Selfossi. Á fundinum var staða almenningsíþrótta og íþrótta innan fyrirtækja rædd, hvaða verkefni væru í gangi í löndunum og kæmu vel út sem og hvaða verkefni væru ekki að virka. Öll Norðurlöndin áttu fulltrúa á fundinum og var fulltrúi Grænlands sérstakur gestur á fundinum. Hver og einn fulltrúi var með kynningu um verkefni sín.

Hafsteinn Pálsson, formaður almenningsíþróttasviðs ÍSÍ hélt erindi um verkefni sviðsins. Einnig hélt Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ erindi um uppbyggingu sambandsins.

Fundargestir fóru í heimsókn í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss. Þar tóku á móti þeim Gissur Jónsson, framkvæmdastjóri Umf. Selfoss, Bragi Bjarnason, íþrótta- og menningarfulltúi Árborgar og Engilbert Olgeirsson, framkvæmdastjóri HSK. Þeir fóru yfir fyrirkomulag íþróttastarfs í Sveitarfélaginu Árborg og hvernig hefur tekist til. Sveitafélagið Árborg býr yfir glæsilegri íþróttaaðstöðu og eru sveitarfélagið, Umf. Selfoss og HSK að vinna frábært starf.

Gígja Gunnarsdóttir frá Embætti landlæknis og Ólöf Kristín Sivertsen frá Heilsueflandi samfélagi í Mosfellsbæ komu og kynntu verkefnið Heilsueflandi samfélag. Fundurinn tókst mjög vel og var afar fróðlegt að sjá hvað aðrar Norðurlandaþjóðir eru að gera í tengslum við almenningsíþróttir. Næsti fundur verður haldin í Noregi á næsta ári.

Meðfylgjandi mynd er tekin af hópnum í kynnisferð um íþróttamannvirki á Selfossi.