Fyrsta mót Egils í rúmt ár

Júdó - Egill Blöndal og Sveinbjörn Iura EM 2020
Júdó - Egill Blöndal og Sveinbjörn Iura EM 2020

Egill Blöndal féll úr leik í fyrstu umferð á Evrópumótinu í júdó sem fór fram í Prag í Tékklandi um helgina. Þetta var fyrsta mót Egils, sem keppir í -90 kg flokki, eftir meira en eitt ár frá keppni og tvær erfiðar aðgerðir.

Egill tapaði fyrir afar sterkum keppanda frá Georgíu, Beka Gvinasvhili, sem er í tíunda sæti heimslistans í þyngdarflokknum en Egill er í 123. sæti á listanum. Egill stóð vel í mótherja sínum og varði glíma þeirra í tæpar þrjár mínútur. Það fór svo að lokum að Gvinasvhili náði í bronsverðlaun á mótinu sem sýnir vel hversu sterkur andstæðingurinn var.

Auk Egils var Sveinbjörn Iura fulltrúi Íslands á EM. Sveinbjörn sem keppir í -81 kg flokki sat hjá í fyrstu umferð og lá fyrir Rúmenanum Marcel Cercea í annarri umferð.

Nánari upplýsingar um um mótið má finna á vef Júdósambandsins 

---

Egill (t.h.) og Sveinbjörn að lokinni æfingu fyrir mótið í Prag.
Ljósmynd: JSÍ