Fyrsti vinningur í jólahappadrætti 2020

IMG_9494
IMG_9494

Föstudaginn 18. desember síðastliðinn var dregið í jólahappadrætti unglingaráðs knattspyrnudeildar Selfoss. Aðalvinningurinn, 65“ sjónvarp frá Árvirkjanum, kom á miða númer 2.139 sem er í eigu Tómasar Þóroddssonar og Idu Sofiu Grundberg. Það var Ingi Rafn Ingibergsson starfsmaður knattspyrnudeildar Selfoss sem afhenti Idu Sofiu sjónvarpið í verslun Árvirkjans á nýju ári.

---

Á myndinni er Ida Sofia ásamt Inga Rafni (t.v.) og Hafþóri Oddi Jóhannessyni frá Árvirkjanum.
Ljósmynd: Umf. Selfoss