Gerðu góða ferð til Vestmannaeyja

Knattspyrna - 5. fl. kvk. Pæjumót
Knattspyrna - 5. fl. kvk. Pæjumót

Stór hópur knattspyrnukvenna í 5. flokki á Selfossi tók þátt á Pæjumótinu í Vestmannaeyjum í síðustu viku en mótinu lauk á þjóðhátíðardaginn. Selfoss sendi þrjú lið til leiks sem samtals voru skipuð 29 leikmönnum. Auk þeirra fylgdi fjöldi foreldra og systkina hópnum og átti góða daga í Eyjum.

Selfossliðin náðu öll góðum árangri og voru félagi sínu til sóma. Katrín Ágústsdóttir var valin í Pressulið mótsins og skoraði m.a. eitt mark í 4-0 sigri á Landsliðinu.

Þjálfarar Selfoss eru Alfreð Elías Jóhannsson og Magdalena Reimus. Auk Pæjumótsins sendir flokkurinn þrjú lið til leiks á Íslandsmótinu í sumar og fer í júlí á Símamótið í Kópavogi.

Ljósmyndir: Sunnlenska.is/Guðmundur Karl