Góður árangur hjá borðtennisdeild Selfoss um helgina

Borðtennisdeild Umf. Selfoss átti viðburðaríka helgi þar vel gekk, þó einnig hafi nokkur úrslit fallið naumt hinum megin við borðið.

Holger og Rubén urðu Íslandsmeistarar í sínum flokkum, Holger í 60+ flokki og Rubén í 40+ flokki. Holger bætti síðan við öðrum Íslandsmeistaratitli þegar hann sigraði í tvíliðaleik ásamt Gumma frá KR.

Rubén og Stebbi Orlandi náðu því miður ekki að verja Íslandsmeistaratitil sinn í tvíliðaleik, en þeir börðust vel og áttu góðan leik gegn Michal og Piotr.

Á Lokamótinu sýndi Anton einnig mjög góða takta og spilaði vel. Frammistaðan dugði þó ekki til sigurs í fjórðungsúrslitum að þessu sinni.

Borðtennisdeild Umf. Selfoss óskar keppendum til hamingju með góðan árangur og þakkar þeim fyrir flott framlag um helgina.