Grunnskólamót Árborgar í frjálsum íþróttum verður haldið í 17. sinn miðvikudaginn 20. maí 2015 og fer keppnin fram á frjálsíþróttavellinum á Selfossi.
Klukkan 16:30 hefst keppni í 1.-4. bekk og klukkan 18:00 hefst keppni í 5.-10. bekk.
Keppt er í eftirfarandi flokkum og greinum hjá stelpum og strákum:
Allir í 1.-4. bekk fá þátttökuverðlaun en veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í 5.-10. bekk.
Hver keppandi í 1.-4. bekk fær þrjár tilraunir bæði í langstökki og kúluvarpi. Í 5.-10. bekk fær hver keppandi fjórar tilraunir í kúluvarpi og langstökki auk þess sem keppendur í spjótkasti í 7.-10. bekk fá fjórar tilraunir.
Skráningum skal skila eigi síðar en mánudaginn 18. maí á netfangið helgihar@simnet.is eða til íþróttakennara í viðkomandi skóla.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Anna Guðjónsdóttir í símum 482-3182 eða 892-7052.