Grýlupottahlaup 4/2026 - Úrslit

Keppendur við rásmarkið.
Keppendur við rásmarkið.

Um 90 keppendur tóku þátt í fjórða Grýlupottahlaupinu þetta árið. Hlaupið var í blíðskaparveðri laugardaginn 2.maí.

Hjá stelpunum náði Ástdís Lilja Guðmundsdóttir besta tímanum, en hún hljóp á tímanum 03:20.

Hjá strákunum var það Andri Vikar Kristinsson sem náði besta tímanum eða 03:45.

Hlaupið var fjórða hlaupið af 6 hlaupum. Næstu hlaup eru 9.maí & 16.maí. Að loknum sex hlaupum eru teknir saman besti árangur úr samanlögðum fjórum hlaupum og veitt verðlaun.

Úrslit úr hlaupinu má sjá á eftirfarandi slóð: https://timekeep.34h.dev/Grylupottahlaup

Ef þið sjáið villu í úrslitum (vitlaust nafn, rangt fæðingarár eða tími stemmir ekki) sendið þá athugasemd á netfangið frjalsar@umfs.is