Grýlupottahlaup Selfoss 50 ára

Grýlupottahlaup 2018 (3)
Grýlupottahlaup 2018 (3)

Grýlupottahlaup Selfoss fagnar 50 ára afmæli í ár en fyrsta hlaup ársins 2019 er laugardaginn 6. apríl næstkomandi, er þetta í 51. skipti sem hlaupið er haldið.

Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Skráning hefst kl. 10:00 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið sjálft hefst kl. 11:00.

Í hlaupinu eru sex einstaklingar ræstir saman með hálfrar mínútu millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með.

Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið er 6. apríl, síðan 13. apríl, 27. apríl, 4. maí, 11. maí og 18. maí. Ekki er hlaupið laugardaginn fyrir páska.

Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjórum hlaupum og veitt verðlaun.Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna.

Stefnt er á að hafa verðlaunaafhendingu laugardaginn 25. maí í Tíbrá klukkan 11.