Grýlupottahlaup Selfoss hefst laugardaginn 18. apríl

Grýlupottur
Grýlupottur

Grýlupottahlaup Selfoss 2015 hefst laugardaginn 18. apríl næstkomandi. Er þetta í fertugasta og sjötta skipti sem hlaupið er haldið.

Grýlupottahlaupið er 850 metra langt. Skráning hefst kl. 10:30 í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, á íþróttavellinum. Hlaupið hefst svo kl. 11:00.

Tveir og tveir hlaupa saman og er ræst með 10 sekúndna millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með.

Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið er 18. apríl, síðan 25. apríl, 2. maí, 9. maí, 16. maí og 30. maí. Verðlaunaafhending er síðan stefnt á að hafa laugardaginn 6. júní í Tíbrá kl. 11. Keppt er í öllum aldursflokkum karla og kvenna. Að loknum sex hlaupum er tekinn saman besti árangur samanlagt úr fjórum hlaupum og veitt verðlaun.