Grýlupottahlaupið heldur áfram um helgina

Grýlupottahlaup 2016
Grýlupottahlaup 2016

Sem fyrr var góð þátttaka var í þriðja Grýlupottahlaupi ársins 2017 sem fór fram á Selfossvelli laugardaginn 6. maí. Á annað hundrað þátttakendur hlupu metrana 850 í rjómablíðu.

Úrslit úr þriðja hlaupi ársins má finna á vefsíðu Sunnlenska.is. Bestum tíma hjá stelpunum náði Hrefna Sif Jónasdóttir, 3:13 mín og hjá strákunum var það Dagur Fannar Einarsson sem hljóp á 2:46 mín.

Fjórða hlaup ársins sem fer fram nk. laugardag 13. maí. Skráning hefst kl. 10:30 og er fólk hvatt til að mæta tímanlega til að forðast biðraðir.