Guðjónsdagurinn 2015

Guðjón Ægir
Guðjón Ægir

Guðjónsdagurinn 2015 verður haldinn hátíðlegur á Selfossi á morgun laugardaginn 7. febrúar en í ár eru sex ár síðan Guðjón Ægir Sigurjónsson vinur okkar kvaddi þennan heim. Til að halda minningu hans á lofti tökum við fyrsta laugardag í febrúar frá til að skemmta okkur og öðrum í anda Guðjóns.

Allar upplýsingar um daginn eru á fésbókarsíðu Guðjónsmótsins/Guðjónsdagsins.

Dagurinn hefst kl. 9:00 um morguninn í Íþróttahúsinu Iðu með Guðjónsmótinu í knattspyrnu, sem er firma- og hópakeppni. Mótið mun allt fara fram í Íþróttahúsinu Iðu. Leiktíminn verður 1x7 mínútur og verður spilað í riðlum þar sem efsta lið hvers riðils mun komast áfram í undanúrslit.

Einungis er löglegt að hafa einn leikmann, sem er með skráðan leik í Íslandsmóti karla 2014 (sama hvaða deild það er) inn á í einu. Nánari upplýsingar varðandi reglur mótsins er hægt að fá við skráningu liðs.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess verða verðlaun fyrir bestu búningana og eftirtektarverðasta leikmanninn. Þetta er viðburður sem ekki má láta fram hjá sér fara, taumlaus gleði og grín og misgóðir sparksnillingar að reyna fyrir sér í knattspyrnu.

Sigurvegarar síðasta árs voru Sjóvá og verður þeim veitt veruleg keppni þetta árið.

Að móti loknu verður svo stanslaust stuð í Hvíta húsinu á Styrktarballi Knattspyrnudeildarinnar og er stefnt á að hið MAGNAÐA BOLTABAND muni halda uppi fjörinu ásamt þeim Gunna Óla, Hebba og Hanna Bach fram á nótt.

Láttu þig ekki vanta laugardaginn 7. febrúar n.k. og taktu þátt í skemmtilegum degi með okkur til minningar um frábæran félaga.